|
|
30.11.2008 13:37:02 / slank
Verð nú bara að monta mig smá. Ég er búin að vera í heilsukeppni í vinnunni síðan í apríl. Aðalástæðan fyrir að ég fór í þessa keppni var sú að ég mundi EKKI fitna í þessu fæðingarorlofi eins og hin tvö. Þá hélt ég nefnilega að fæðingarorlof snérumst um það að borða MAT og þyngdist um alveg fullt af kílóum.
Í vor fór ég á danska kúrinn og var í honum fram á haust. Var líka mjög dugleg að fara út að labba til að brenna. Í haust skráði ég mig í átakið Líkami fyrir lífið og fór að hreyfa mig SEX sinnum í viku og borða skv. þeirra ráðleggingu. Fór að lyfta í worldclass 3x í viku og brenna 3x í viku.
Á fimmtudaginn var svo lokamæling, ég vissi ekkert hvernig mér hafði gengið og sá sem sá um átakið upp í vinnu vildi ekkert gefa útá mælinguna svo ég vissi ekkert við hverju ég ætti að búast. Auðvitað langaði mig að komast á pall þar sem ég hafði bæði hreyft mig og passað mig í mataræðinu.
Það var ákveðið að hafa niðurstöðurnar þannig að þeir sem hefðu sýnt mestan árangur hlutfallslega ættu mestan möguleika á að vinna. En til að hafa langa sögu stutta, þá var ég í öðru sæti í kvennaflokki og ég er bara ógeðslega montin af því. Hér koma tölurnar mínar:
Fitumassi niður um 43% Vöðvamassi upp um 7,2% Ummál niður um 17%
Nú er ég bara að bíða eftir því að hann sendi okkur alvöru tölurnar sem hann vildi ekki gefa mér upp. Takmarkið var jú að komast úr 29 komma eitthvað í fitumælingu niður í 25. Ég blogga næst þegar þær niðurstöður koma.
Svo er aftur mæling í Líkama fyrir lífið á þriðjudaginn, þá fæ ég að vita hversu miklum árangri ég hef náð síðan í haust. Er líka spennt fyrir því 
En ég ætla bara að vera áfram dugleg að æfa. Líður ofsalega vel eftir æfingarnar og mér finnst svo frábært hvað ég er búin að geta þyngt tækin mikið síðan ég byrjaði. Vonandi er ég loksins búin að temja mér þetta líferni
Eini gallinn er sá að nú á ég engin föt sem ég passa í og það er nú ekki gott í kreppunni!!!
»
06.11.2008 13:30:11 / slank
Er að spá í að ráða mér lögfræðinginn sem er í Kaupþing sem kann að fella niður skuldir. Það væri mjög vel þegið, er til í að borga VEL fyrir þá lögfræðiaðstoð
»
31.10.2008 21:00:09 / slank
Hér er allt gott að frétta, við erum enn með vinnu, getum borgað af lánunum okkar og eigum efni á mat. Er eitthvað meira sem maður getur óskað eftir á þessum síðustu og verstu tímum. Ég hef ákveðið að fara eftir geðorðunum 10 til að dragast ekki ofan í þennan drullupytt sem svo margir eru að sogast ofan í þessa dagana: Geðorðin 10Hugsaðu jákvætt, það er léttara Hlúðu að því sem þér þykir vænt um Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir Lærðu af mistökum þínum Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina Flæktu ekki líf þitt að óþörfu Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig Gefstu ekki upp,velgengni í lífinu er langhlaup Finndu og ræktaðu hæfileika þína Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast
Er enn á fullu í ræktinni, mæti 3x í viku til að lyfta og reyni að fara út að labba 3x í viku... hef samt ekki farið út að labba þessa vikuna þar sem litlan mín var lasin en er orðin góð núna. Er farin að finna heilmikin mun og sjá vöðva hér og þar. Nú er nýjasta idolið mitt Madonna þó að kallinn minn vilji ekki að ég verði svo mössuð ... þetta er bara svo flott Pælið í því að hún er örugglega um fimmtugt og alveg geðveikt flott vaxin... kannski ekki allir samála mér í því samt!!!

»
23.10.2008 22:56:47 / slank
Mikið finnst mér sorglegt að lesa umræður á netinu um efnahagsástandið, þá sérstaklega á barnalandi þar sem hópur fólks er að úthúða auðmönnum Íslands og kenna þeim einhliða um allt sem aflaga hefur farið á Íslandi. Ég veit að sjálfsögðu ekki hvað í raun gerðist en ég veit samt það mikið að það er alls ekki hægt að kenna þeim einum um ástandið og að þetta er bara svo miklu flóknara en svo.
Það eru margir að hvetja til að hætta að versla við Bónus þar sem það er tengt þessum auðmönnum. Ég segi nú bara ... hvar stæðum við ef Bónus hefði ekki haldið niðri vöruverði í öll þessi ár. Ég held að það sem er að gerast núna er að öfundin er að koma upp á yfirborðið út í þetta fólk sem hefur gengið svo vel í viðskiptalífinu og voru okkar þjóðhetjur fyrir ekki svo löngu síðan.
Í seinni heimstyrjöldinni kom einmitt þessi staða upp í Þýskalandi, það var mikil kreppa og gyðingar voru auðmennirnir. Áttu fullt af peningum og það var mikil reiði í þeirra garð. Með heilaþvotti tókst Hitler að sannfæra þjóðina um að þetta fólk væri réttdræpt. Er það furða að fólk á Íslandi sé komið með lífverði hér á landi!
Ég held að byrjunin á þessu öllu var það að stjórnmálaflokkar sem voru við völd virtust ætla að einkavæða allt sem þeir gerðu líka að stórum hluta. Þeir hvöttu til útrásar og hömpuðu þeim sem stóðu sig best í því. Þar sem allt var í blóma varð svo há verðbólga þar sem fólk var að eyða svo miklu, langt umfram það sem getur talist eðlilegt. Seðlabankinn fór því að reyna að stjórna hegðan okkar með háum stýrivöxtum til að við mundum hætta þessari ofneyslu en það bara virkaði ekki. Þar sem vextir í landinu voru orðnir hæstir í heimi, þá fóru erlendir aðilar að sýna áhuga á að ávaxta peningana sína hér. Þeir tóku lán í Japan sem eru með lægstu stýrivexti í heimi þar sem þeir eru með öfugt ástand þar, verðhjöðnun, og ávöxtuðu peningana sína á Íslandi með svakalegum vaxtamun. Landsbankinn hélt utan um þetta og stofnaði Icesave, þetta umtalaða fyrirbæri. Fyrir tveimur árum var ég í tíma hjá prófessor í HÍ sem er mjög fær í bankamálum. Hann tók sérstakan tíma í að útskýra fyrir okkur fyrirbærið Icesave sem Landsbankinn hafði stofnað og hann lýsti því yfir hverslags snilld þetta væri. Þetta virtist líta vel út en það vissi engin að þetta mundi koma "þjóðarskútunni á kaf" eins og svo margir hafa orðað þetta réttilega.
Þetta er það sem ég skil af þessu en ég veit að þetta hefur samt ennþá fleiri anga þó að þetta standi upp úr.
Ég veit allavega það eitt að það er ekki rétt að hengja "bakara fyrir smið". Mér finnst samt alveg siðferðislega rétt að ef þessir auðmenn eigi mjög miklar eignir, að þeir hjálpi til við uppbyggingu samfélagsins en sitji ekki á eignunum sínum meðan við hin sveltum. En kannski munu þessir ríku menn bara fara mjög illa út úr þessu og munu blæða mest... hver veit!
»
21.10.2008 14:27:04 / slank
Jæja, var að koma úr fitumælingu, er á 6. viku af 12 í namskeiðinu "Líkami fyrir lífið". Lækkaði í fituprósentu úr 27,7 niður í 26,1 og er BARA sátt Markmið mitt með þessu námskeiði var að komast niður í 25 í fitumælingunni og það virðist bara ætla að takast. Missti líka einhverja sentimetra en viktin fór aðeins upp... sem er allt í lagi þar sem vöðvarnir eru að segja til sín.
Í vor fór ég í fitumælingu og var þá held ég 29,1 svo það er alveg fullt búið að gerast síðan þá.
Þetta var montblogg dagsins 
»
18.10.2008 12:59:19 / slank
Hvað er fólk að kvarta, það er þvílík gósentíð á Íslandi í dag.
- Bensín lækkar um 18 krónur á innan við viku - 2 l. kók zero er selt á 96 kr. í Bónus - Fjölskyldur þjappa sér saman og gera hluti saman eins og að baka - Fólk sýnir meiri samhug og hlúir að náunganum - Allstaðar er verið að auglýsa útsölur
Gætum við nokkuð haft það betra  En langt síðan ég hef bloggað. Er enn á fullu í ræktinni og hef að náð að hreyfa mig 6x í viku... og nú er 5. vikunni að ljúka. Í næstu viku fer ég í fitumælingu og ummálsmælingu, er spennt að vita hvað fitumælingin segir. Fékk nýtt prógram í Worldclass í gær og er bara spennt að byrja á því. Var orðin hálf leið á hinu, enda búin að vera með að síðan í enda ágúst.
Er annars bara í Pollýönnu-leik. Horfi bara á það jákvæða sem kemur út úr þessarri kreppu sem er að skella á okkur og reyni að loka augunum fyrir því jákvæða. Held að maður megi bara þakka fyrir meðan maður hefur vinnu, heilsu og fjölskylduna sína því það skipti auðvitað öllu máli. Annað er bara aukaatriði.
Svo er auðvitað nauðsynlegt að hreyfa sig því það sprautar svo miklu endorfíni í kroppinn og þá verður allt svo auðvelt... skrítið að ég var ekki búin að fatta það fyrr 
»
08.10.2008 11:31:21 / slank
Það er búið að hljóma í eyrunum á okkur undanfarið árið aðvaranir frá einhverjum vitleysingum úti í heimi að íslensku bankarnir séu óstöpulir og þeir séu í mikilli hættu. Danski bank ásamt öðrum voru stanslaust að reyna að "tala hagkerfið niður" eins og einhverjir orðuðu það og voru bara með stæla. Maður spurði sig líka á þeim tíma... "Halló, vita þeir ekki hversu mikin hagnað bankarnir eru með og hversu stöndugir þeir eru!!!"
En svo bara springur bólan á einni nóttu og blákaldur raunveruleikinn blasir við okkur Íslendingum... við erum kannski ekki eins rík og stöndug eins og við héldum. Allir eru hálf óttaslegnir því maður veit ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér og allir óttast það versta. Fólk er með áhyggjur af sínum nánustu og margir hafa kannski lítil sem engin ráð. Allt of margir eru ofsalega skuldsettir, með einbýlishús sem er yfirveðsett vegna erlendra lána, með flotta jeppann í heimreiðinni sem er allur á lánum og með fellihýsið sem er eins og hús á hjólum. Nú er ekki hægt að selja þessa hluti nema kannski á algjöru undirverð og gefa því eftir eitthvað af skuldunum.
Ég vona bara að fólkinu í landinu verði hjálpað í gegnum þessar hremmingar af stjórnvöldum og þetta taki sem skemmstan tíma, kannski 2 ár í mesta lagi en á meðan getum við farið sparlega og skipulagt okkur í matarinnkaupum.
Ég var að hlusta á Jónínu Ben um daginn, það kom nú alveg einn flottur punktur hjá henni: "Það er líf eftir gjaldþrot" enda er það ekkert það versta sem getur gerst meðan maður heldur heilsu og fær að hafa fjölskylduna sína og vini áfram. Vonandi verður skaðinn samt lágmarkaður þó það sé ljóst að allt of margir stefni í gjaldþrot, bæði fyrirtæki og einstaklingar.
Ég lít allavega bara jákvæð fram á vegin og ætla að gera það besta úr þessu öllu saman. Það er svo margt sem er hægt að gera með fjölskyldunni sem er ódýrt eða jafnvel ókeypis. Til dæmis kostar ekkert að fara í göngutúr saman og það er góður vettvangur til að styrkja tengslin og tala saman. Það er ódýrt að fara í sund, fjallganga á Helgafell eða önnur lítil fjöll léttir lundu og fær mann til að gleyma hversdagsleikanum. Ég ætla að stefna að því að fara þangað mjög bráðlega. 
En auðvitað læðist að manni smá kvíði öðru hvoru eins og væntanlega flestum í dag, þó ég hafi ekki áhyggjur af mínum fjárhag en það er bara þessi óvissa. En það er bara málið að láta hann ekki ná tökum á sér og hrista hann í burtu, jafn skjótt og lætur á sér bæra. Við ráðum nefnilega svo mikið sjálf hversu mikil áhrif við ætlum að láta þetta hafa áhrif á okkur. Hugarfarið skiptir öllu máli.
Læt þetta vera gott í dag þó ég gæti nú alveg skrifað heila ritgerð um allt sem er að gerast í dag.
»
03.10.2008 01:01:03 / slank
Ég gæti skrifað hérna heila ritgerð um fjármálamarkaðinn í dag... en ég ætla ekki að gera það. Ég segi bara... búið ykkur undir það versta, þetta mun skella á okkur á fullum þunga eftir svona 2-3 mánuði eins og snjóskriða. 
Nú er ráð til komið að spara, bæði í mataræði, bensíni og öðru. Þar sem ég tem mér það að sjá jákvæðu hliðarnar á hlutunum, þá ætla ég að koma með nokkra góða punkta sem geta nýst á þessum erfiðu tímum. Ég ætla allavega að fara eftir þessu 
- Ef þið getið ekki borgað af lánunum ykkar, talið þá við fjármálastofnanirnar og semjið, því fyrr því betra. Fyrirtækin eru yfirleitt liðleg ef það er komið í tíma.
Sparið bílinn. Notið tækifærið til að ganga það sem hægt er að fara fótgangandi, það léttir lundina og styrkir kroppinn. Takið strætó ef vegalengdin er lengri, takið með góða bók og njótið þess að hafa einkabílstjóra. Verslið einungis í Bónus eða Krónunni og gerið stórinnkaup þegar þið farið. - Ódýrast er að taka slátur, það er bæði gott og ódýrt... (verst að fjölskyldan mín vill þetta ekki). Lærið að elda úr baunum sem þið eldið sjálf, það er bæði gott og hræódýrt. Eldið öðru hvoru fiskibollur í dós eða fiskbúðing, súpur og hrísgrjónagrauta. Ferlega ódýr en samt góður matur.
- Takið fram brauðvélina ykkar sem er rykfallin inni í geymslu og bakið brauð annan hvorn dag. Það er bæði ódýrt og svo líka besta brauð í heimi.
- Drekkið sódastream, það er hollt og gott.
- Umfram allt... lítið á björtu hliðarnar. Við erum til dæmis ekki að fá til okkar einhvern heimsfaraldur eins og fuglaflensuna.
Ef maður skipuleggur sig vel, þá ætti maður að komast klakklaust út úr þessu. Svona þrengingar í fjármálum taka alltaf enda.
En annars er ég bara að njóta þess að vera til, hreyfi mig 6x í viku. Fer annan hvorn dag að lyfta og hinn daginn reyni ég að fara út að labba með vagninn. Það er svo hressandi að komast út, maður er alveg endurnærður þegar komið er heim. Svo hef ég bara svo mikið að gera við að rækta tengslanetið. Er í tveimur mömmuhópum sem hittumst reglulega með börnin okkar. Svo er bara ótrúlega mikið að gera hjá manni við að vera BARA heimavinnandi. En þetta er samt bara gaman og ég nýt þess í botn að vera með litlu snúllunni minni heima.
Það er líka bara gott að vera ekki í vinnunni þessa dagana þar sem ég er að vinna með fjármál en ég held það sé nú bara frekar erfitt þessa stundina.
Well, er farin upp í rúm og hlusta á söguna "The secret life of bees" eða "Leyndarmál býflugnanna". Er að hlusta á hana á ensku og stelpan sem les söguna, les hana svo skemmtilega. Ta ta...
»
21.09.2008 20:08:12 / slank
Ugly children Playboy I was born and all I've got was this lousy body
Hvað eiga þessar þrjár setningar sameiginlegt? Hvað er það fyrsta sem ykkur dettur í hug?
Þetta er allt tengt ungbarnafötum. Gátuð þið rétt???
Ugly children (heiti á fatategund) Playboy (stendur á voðalega sætum ungbarnabol) I was born and all I've got was this lousy body (stendur utan á samfellu)
Vá, þetta var sætt og allt það en það er eins og manni sé illa við barnið sitt með því að kaupa þetta. Ég og stelpan mín sem er 15 ára, við vorum bara í áfalli í dag þegar við vorum að skoða þessi voðalega "sætu" barnaföt!!!
Keypti samt þennan sæta bol, bara af því að hann hét ekkert ljótt. Er nú samt ekkert að meina að stelpan mín sé algjör api 

»
16.09.2008 14:05:17 / slank
Jæja, þá er átakið hafið. Byrjaði á fyrirlestri fyrir Líkama fyrir lífið í gær og mér líst bara vel á þetta. Þetta er svolítið frjálslegt og maður má bara æfa eins og hverjum og einum hentar.
Mitt markmið er: 1. Mæta lágmark 3x í viku í ræktina og halda út þessar 12 vikur 2. Lækka fituprósentu úr 27,7 í 25,2 eða um 2,5%
Annað var það ekki, enda finnst mér þetta nógu stór markmið, þ.e. að halda þetta út. Með þessu vonast ég til að vera komin með líkamsrækt sem rútínu inn í mitt líf því ég finn hvað mér líður ferlega vel þegar ég er að æfa. Er nú búin að æfa núna í 4 vikur og alltaf mætt 3x í viku nema þegar ég fór í réttirnar, þá lyfti ég bara lóðum heima í staðin.
Er svo heppin að mágkona mín og systir hennar eru með mér í þessari grúppu svo við getum haft stuðning hvor af annarri. Þá er þetta svo miklu auðveldara.
Svona kem ég til með að líta út eftir 12 vikurnar eftir allar lyftingarnar 

»
13.09.2008 00:15:32 / slank
Var að horfa á friends á miðvikudaginn. Þá fékk Ross dóttur sína til að hlæja í fyrsta sinn með því að syngja lagið "I like big butt's and I can not lie" ... og nú er ég búin að vera með lagið á heilanum síðan. Er ekki til eitthvað flottara lag til að fá á heilann... kannski eru þetta skilaboð til mín til að fá dóttur mína til að hlæja ... prófa það á morgun  En hér er þetta atriði svo ÞIÐ getið líka fengið það á heilann: Var annars að koma úr réttum, það var svo gaman að venju. Dró reyndar 0 kindur en strákurinn minn sá um að draga eina kind svo við myndum skila einhverju framlagi fyrir að fá að mæta. Er að byrja í "Líkamanum fyrir lífið" á mánudaginn í Worldclass, hlakka ferlega til þess. Þetta verða vonandi bara skemmtilegar 12 vikur. Mér líkar best við það að það á bara að æfa 46 mín. 3x í viku og svo bara t.d. út að labba í 20 mín 3x í viku. Það hentar vel þegar ég er heimavinnandi og þá get ég tekið litlu dúlluna með mér í "leikfimina" 3x í viku. Get þannig slegið tvær flugur í einu höggi, brenna í 20 mín og labba úti með hana svo hún fái hreint loft.
»
09.09.2008 01:38:54 / slank
Var að kynnast facebook.com... vá hvað þetta er sniðugt, en mikill tímaþjófur. Ótrúlegt hvernig leitarvélin veit að ég ætti líklega að þekkja þessar manneskjur. Ætli það sé tengt því að einhver hafi flett nafninu mínu upp, hvaða skóla ég er úr eða bara bæði? Hverig sem er, þá er þetta ferlega sniðugt og ég vona að ég sofni einhvern tíman í nótt fyrir þessu
»
07.09.2008 01:09:59 / slank
Var að gefa henni fyrsta grautinn sinn ... henni fannst hann bara algjört ógeð eins og myndin ber með sér  
»
07.09.2008 00:48:46 / slank
Mér finnst ferlega erfitt að viðurkenna það ... en það er lítill sætur drengur sem er að gera alla fjölskylduna mína hálf geðveika. Hann hringir hingað oft á dag, hringir dyrasímanum reglulega og situr oft fyrir utan húsið okkar, bíðandi eftir að strákurinn minn fer út um hurðina því þá gæti hann viljað leika. Svo er hann með svo svakalega yfirheyrslu þegar hann hringir, veistu hvar hann er, er langt síðan hann fór út, hvenær kemur hann heim, heldur þú að hann vilji leika þegar hann kemur heim???
Þetta er lítill drengur sem er svo góður en hann á örugglega ferlega bágt. Hann væri varla að leggja allt þetta á sig nema því hann á enga vini. Þegar síminn hringir hér heima segjum við iðulega: "Þetta er XXX að hringja" og það er í flestum tilfellum rétt. Stundum verð ég nú frekar pirruð, nýbúin að leggja Andreu í rúmið og þá hringir hann einu sinni enn og þá vaknar hún. Eldri dóttir mín var brjáluð þegar ég kom heim einn daginn og hreytti framan í mig að hún væri búin að fá nóg af þessum síma og dyrasíma og hún væri sko ekki einhver ritari fyrir bróður sinn.
Mér þætti svo ofsalega erfitt ef drengurinn minn væri svona vinalaus og sem foreldri getur maður svo lítið gert. Mér finnst heldur ekki vera í mínum verkahring að neyða strákinn minn til að leika við þennan strák, en hann gerir það sem betur fer stundum. En kannski af því að hann leikur STUNDUM við hann, þá kannski hringi hann mun oftar því hann gæti viljað leika við hann í dag.
Þetta hefur orðið til þess að við bara nennum ekkert alltaf að svara. Um daginn, þá kom tengdamamma og hringdi dyrasímanum. Við lágum upp í rúmi og bara nenntum ekki að svara til að segja að strákurinn væri ekki heima. Dyrasíminn hringdi í annað sinn... og svo í þriðja sinn. Það var nú óvanalegt. Maðurinn minn fór þá sem betur fer til dyra. Tengdamamma alveg hissa að vera ekki hleypt inn, var búin að sjá bílinn fyrir utan og bjóst því að við værum heima.
En ég bara óska núna eins... það er að þessi einmanna drengur eignist góðan vin sem nennir að leika við hann alla daga því það er svo hræðilegt að vera svona vinalaus!!!
»
05.09.2008 20:34:55 / slank
»
Síður: 1 2 3 ... 27
|
Talning
Fyrir 467 dögum
er Líkami fyrir lífið búið!
Heimsóknir
Í dag: 31 Alls: 66785
|